| Hvað er Stjörnuver? |
|
|
|
| Skrifað af: Snævarr |
| Þriðjudagur, 06. Janúar 2009 00:00 |
|
Stjörnuver er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja inni í kúlulaga hvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar mynd af stjörnuhimninum á veggi hennar. Í stjörnuverinu fræðast áhorfendur um stjörnur, reikistjörnur, tunglið og önnur fyrirbæri alheimsins. Í einu vetfangi má fljúga hjá tunglinu, elta geimkönnunarför á milli reikistjarna, sjá skýjabelti Júpíters eða hringa Satúrnusar. Jörðina má skoða frá ýmsum sjónarhornum í sólkerfinu eða sjá hvar sólin á heima í vetrarbrautinni. Í raun má ferðast um stóran hluta hins sýnilega alheim og fræðast um ótalmargt fleira sem fyrir augu ber.
Hvers vegna ættu kennarar að fara með börnin í stjörnuver?Börn frá leikskólaaldri uppgötva stjörnurnar og spyrja spurninga. Í stjörnuverinu gefst þeim sem fullorðnum einstakt tækifæri til þess að kynnast stjörnunum á léttan og eftirminnilegan hátt. Stjörnufræði er einstæð að því leyti að þekking á henni nær til margra þátta í tilveru okkar. Þar má nefna tímatal, stærðfræði, bókmenntir og listir, heimsfræði, eðlisfræði, líf- og efnafræði. Stjörnufræði rekur rætur til upphafs siðmenningar og er elsta vísindagreinin. Á okkar tímum er um að ræða sannkallaða gullöld þessara fræða þar sem margar athyglisverðar uppgötvanir eru gerðar í sífellu. Hverjum öðrum hentar að heimsækja stjörnuver?Allir geta komið í stjörnuver og erindi eru miðuð við ólíka aldurshópa, allt frá eldri leikskólabörnum upp í fullorðna gesti og raunar alla sem vilja fræðast um stjörnurnar. Fjölskyldur, vinnustaðahópar og önnur félagasamtök geta heimsótt stjörnuverið sér til gagns eða gamans og einnig nýtist það til námskeiða í stjörnuskoðun. Talsverð reynsla er af færanlegum stjörnuverum erlendis og þykir sýnt að heimsókn í þau opnar augu margra gesta fyrir náttúrunni. Þær hafa örvandi áhrif á hugarflug barna og gefa jákvæða sýn á raunvísindi.
Um stjörnuveriðStjörnuverið er flytjanlegt og hannað til þess að setja upp í leikfimisölum, mötuneytum eða kennslustofum. Um er að ræða tjaldhvelfingu sem haldið er uppi með öflugum loftblæstri og því er loftræsting góð. Er hvelfingin hönnuð þannig að auðveldlega má rýma hana á örfáum sekúndum ef eitthvað óvænt kemur upp. Eftirfarandi hópar eru lýsandi dæmi um hverjir geta átt erindi í stjörnuver, sér til gagns og gamans. Einnig er það nýtt til námskeiða í stjörnuskoðun.
Jafnframt geta ýmis tækifæri verið tilefni til þess að fá það í heimsókn:
|
| Síðast uppfært: Sunnudagur, 18. Janúar 2009 01:03 |
Um Stjörnuverið


